Guðbjörg Ólafsdóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir. Milli steins og sleggju: Hugmyndir umsjónarkennara um faglegt sjálfstæði sitt til að tryggja fulla þátttöku allra nemenda í efstu bekkjum grunnskóla – Netla
Hér er fjallað um reynslu kennara á unglingastigi grunnskóla af því að vinna í anda stefnu um skóla án aðgreiningar. Tekin voru eigindleg viðtöl við sex umsjónarkennara í jafnmörgum grunnskólum í fjórum bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður leiddu í ljós að þeir upplifðu miklar skorður af völdum: a) formgerðar grunnskólans á efri stigum sem þeim þótti hafa tekið mun minni breytingum í átt að skóla án aðgreiningar en yngri stig grunnskólans, b) tiltekinna menntastrauma og stefna sem þeim fannst vinna gegn skóla án aðgreiningar og loks c) skorts á faglegum stuðningi í takt við starfsaðstæður þeirra. Það var skoðun kennaranna að jaðarsetning sumra nemenda yrði meira afgerandi eftir því sem á skólagönguna liði. Kennararnir upplifðu sig oft og tíðum eins og milli steins og sleggju þar sem þeim væri gert erfitt um vik að tengja hlutverk sitt sem umsjónarkennarar þekkingu og björgum sem þeir hefðu yfir að ráða. Hjá öllum viðmælendunum kom fram að faglegt sjálfstæði hefði rýrnað og björgum fækkað á síðustu árum, sem rekja mætti til aukinnar markaðs- og stjórnunarvæðingar, og lítið svigrúm gæfist fyrir vangaveltur um siðferðilegt hlutverk og inntak skólans. Kennurunum varð tíðrætt um mikilvægi þess að þeir væru hafðir með í ráðum í hvers kyns stefnumótun í kennslu.